Are you Addicted to the Internet?
The Are you Addicted to the Internet? Quiz at Stvlive.com! |
Þú ættir að borga reikninga og huga að fjármálunum í dag. Þú þarft að koma skipulagi á þennan þátt lífs þíns.
Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar að undanförnu og ættir að taka þér frí frá félagslífinu. Gefðu þér tíma til að vera einn með sjálfum þér.
Það var í febrúar árið 2000, vorið var að ganga í garð eftir harðan og einmanalegan vetur. Það var þá er Houllier og Heskey sáust fyrst, en það var á ónefndum bar í London á Englandi. Houllier sat við barborðið, einmana, og var að drekka Captein í kók. Allt í einu gekk inn myndarlegur maður, mikill vexti sem svaraði nafninu Bruno. Sjarminn og lífsgleðin geislaði af gjafvaxta drengnum en það var ekki það sem felldi Houllier, það voru augun.
Á fimmtudaginn var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á Akureyri vegna þjófnaðar úr verslun í bænum. Í ljós kom að einn viðskiptavinur hafði verslað sér franskar kartöflur í búðinni en síðan borðað þær og hent pokanum utan af þeim áður en hann kom að afgreiðslukassanum. Greinilega góð aðferð til að losa sig við þýfi - svo framarlega sem að það sé ætt.
Frá lögreglunni á Akureyri: Kl. 01:20 aðfaranótt föstudags sáu lögreglumenn á eftirlitsferð í miðbænum hvar maður greip aðvörunarplaststaur fyrir gangandi vegfarendur af gangstéttinni við Kaffi Akureyri og setti inn í bifreiðina sem hann var í. Viðurkenndi maðurinn strax að hafa tekið staurinn og var með annan samskonar inni í bifreiðinni sem hann hafði tekið af gangstétt í Skipagötu. Maðurinn, sem var nokkuð drukkinn, viðurkenndi að hafa stolið staurunum og ætlað að hafa í herbergi sínu til skrauts. Góður þessi!
Enn og aftur gerast hlutirnar á Akureyri: Á sunnudaginn voru svo þrír ferðamenn stöðvaðir við að taka sængurföt út af hótelinu sem þeir gistu á. Töldu þeir að stolið hefði verið af þeim myndavél á hótelinu og ætluðu þeir að kvitta fyrir það með sængurfötunum. Er ekki í lagi með menn fyrir norðan?
Á Ísafirði hefur verið lögð fram kæra vegna hótana og ónæðis sem voru í formi SMS skilaboða í GSM síma. Ísafjarðalögreglan segir slíkt atferli geta varðað hegningarlagabrot og hvetur Ísfirðinga til að afgreiða ágreiningsefni sín á mildan og heiðarlegan hátt. LOL
Frá lögreglunni á Ísafirði: Einn ökumaður var kærður fyrir stöðvunarskyldubrot í vikunni. Aðrir tveir ökumenn voru kærðir fyrir að leggja ranglega. Þá voru tveir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Ísafirði. Þá var einn ökumaður kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti í vikunni. Loks má geta þess að allmargir bifreiðaeigendur voru kærðir fyrir að hafa ekki fært bifreiðar sínar til lögbundinnar skoðunar. Það er greinilegt að lögreglan á Ísafirði hafði í nógu að snúast um helgina og hefur eflaust mikill tími farið í að telja upp öll herlegheitin til að setja í dagbókin, það er greinilegt að hvert smávægilegt afbrot skiptir máli á þessum bænum.