Nýr diskur
Ég var að brenna mér disk til að hafa í bílnum, það er alltaf gott að hafa nóg af góðum diskum í magasíninu þegar maður er á rúntinum. Hérna er lagalistinn og smá kommenst á lögin.
1. Coldplay vs Cosmos - Clocks : Þetta er einhver mesta snilld sem ég hef heyrt, sumarsmellur af bestu gerð.
2. RZA feat. Xavier Naidoo - Ich Kenne Nichts : Flott R&B lag, sérstaklega spilað fyrir Ásrúnu.
3. Eminem feat. J.Black And Masta Ace - Hellbound (H&H Remix) : Eminem er besti hvíti rapparinn frá því að Vanilla Ice gerði garðinn frægan, þetta remix er ótrúlega flott.
4. Too $hort - My Dick, My Sack : Hérna er smá diss í gangi með frekar flottum texta.
5. Obie Trice feat. Dr. Dre & Eminem - Shit Hits The Fan : Líklega er þetta nýtt lag frá meistara Eminem sem bregst ekki frekar en áður.
6. Quarashi - Mess It Up : Besta íslenska rappsveitin að mínu mati með mjög gott lag sem ég tileinka
Rut.
7. Pink - Feel Good Time : Bleikt er inn í dag og Pink líka.
8. Einar Örn - Seinna meir : Ég varð að hafa eitt bolvískt lag á disknum,
Einar Örn kann svo sannarlega að rokka.
9. BMX - 15.000 fet : Verð ég ekki líka að lofa Ísfirðingum (og einum Víkara) að vera með? Ég bíð spenntur eftir meira efni frá
BMX.
10. Snap! - The Power (Of Bhangra) : Upprunalega útgáfan var mjöööög vinsæl þegar ég var í grunnskóla en þessi Bhangra útgáfa er æðisleg.
11. Panjabi MC - Jogi (Remix) : Mér finnst þetta lag eiginlega betra en Mundian To Bach Ke, allavega þetta remix sem ég fann einhvers staðar á netinu.
12. DJ Sammy - Sunlight (Milky Edit) : Hver man ekki eftir Heaven og Boys Of Summer, Milky útgáfan af Sunlight er ótrúlega sumarleg og ég fíla það í tætlur.
13. Saffron Hill - My Love Is Always There : Eitt heitasta lagið á Ibiza í ár - æji nú langar mig svo út í sólina...
14. Kurtis Mantronix pr. Chamonix - How Do You Know : Annað geðveikt Ibiza lag sem ég dýrka.
15. Jason Nevins pr. U.K.N.Y. feat. Holly James - I'm In Heaven : Ég væri líka í skýjunum yfir þessu lagi.
16. Safri Duo - Fallin' High : Safri Duo eru snillingar, ég væri meira en lítið til í að fá þessa geðveiku slagverksleikara til Íslands, hver man ekki eftir Played-A-Live.
17. 2 Unlimited - No Limit 2.3 (Master Blaster Radio Edit) : Ég var mikill 2 Unlmited aðdáandi í gamla daga og á eiginlega allt sem Ray og Anita gáfu út, mér finnst þessi 2003 útgáfa af No Limit vera mjög töff.
18. CJ Stone - Don't Look Back : Ég varð að skella smá þýsku transi með á diskinn ;)
19. Junkfood Junkies - Party Time : Meiri trans fyrir mig.
20. Warp Brothers feat. Red Monkey - Going Insane : Ef þetta lag fær fólk ekki til að fríka út á dansgólfinu þá er ég illa svikinn. Þetta lag er algjör snilld.