Big Brother
SÍMASTÚLKA: Pizza plúúúús!
VIÐSKIPTAVINUR: Halló, ég ætla að panta pizzu hjá ykkur...
SÍMASTÚLKA: Sjálfsagt, ég þarf að fá kennitöluna þína.
VIĐSKIPTAVINUR: Kennitöluna, já hún er 180869-4859.
SÍMASTÚLKA: Já, Jón Jónsson, heimilisfang Fálkagata 17, símanúmer 580-9957. Þú vinnur í herbergi nr. 23 hjá Skýrr og GSM númerið þitt er 879-4138. Úr hvaða síma hringirðu?
VIĐSKIPTAVINUR: Ha, ég? Heimasímanum. Hvar náðirðu í allar þessar upplýsingar?
SÍMASTÚLKA: Við erum tengd við netið.
VIĐSKIPTAVINUR: (andvarpar) Já, ég ætla að fá tvær lúxuspizzur með kjötáleggi...
SÍMASTÚLKA: Ég held þú ættir að sleppa því, Jón.
VIĐSKIPTAVINUR: Hvað meinarðu?
SÍMASTÚLKA: Jón, í sjúkraskýrslunni þinni stendur að þú hafir mjög háan blóðþrýsting og allof hátt kólesteról. Líftryggingafélagið þitt leyfir þér ekki að borða svona óhollan mat.
VIĐSKIPTAVINUR: Hverju mælirðu þá með?
SÍMASTÚLKA: Þú ættir að prófa fituskertu sojabaunapizzuna okkar með jógúrtsósunni. Ég er viss um að þér þykir hún góð.
VIĐSKIPTAVINUR: Hvernig dettur þér í hug að ég mundi vilja eitthvað svoleiðis?
SÍMASTÚLKA: Nú, þú tókst "Gæðauppskriftir með sojabaunum" á bókasafninu í síðustu viku. Þessvegna stakk ég upp á þessu.
VIĐSKIPTAVINUR: Ókey, ókey. Sendu mér tvær í fjölskyldustærð. Hvað kostar þetta svo?
SÍMASTÚLKA: Það ætti að nægja þér, konunni og börnunum fjórum. Kostnaðurinn er 4.589 krónur.
VIĐSKIPTAVINUR: Ég ætlað að borga með kreditkortinu. Númerið er...
SÍMASTÚLKA: (grípur fram í) Því miður, en þú verður að borga út í hönd. Þú ert kominn yfir á kortinu.
VIĐSKIPTAVINUR: Ég hleyp þá bara í næsta hraðbanka með debetkortið og tek út pening áður en bílstjórinn ykkur kemur.
SÍMASTÚLKA: Það gengur ekki heldur. Þú er búinn með yfirdráttinn á tékkareikningnum.
VIĐSKIPTAVINUR: Jæja, jæja, sendu bara pizzurnar og ég hef peningana tilbúna. Hvað tekur það langan tíma?
SÍMASTÚLKA: Við erum aðeins í seinni kantinum, gæti verið um 45 mínútur. Ef þér liggur á gætirðu sótt þær um leið og þú nærð í peningana, en það er auðvitað frekar erfitt að flytja pizzur á mótorhjóli...
VIĐSKIPTAVINUR: Hverning veistu að ég er á mótorhjóli?
SÍMASTÚLKA: Það stendur hérna að bíllinn hafi verið gerður upptækur vegna vangreiðslna á bílaláninu. En Hondan er fullgreidd svo ég gerði ráð fyrir að þú mundir koma á henni.
VIĐSKIPTAVINUR: @#%/$@&?#!
SÍMASTÚLKA: Gættu þín á orðalaginu, Jón. Þú er þegar búinn að fá á þig einn dóm fyrir að blóta í návist lögreglumanns, í júlí 2006.
VIĐSKIPTAVINUR: (orðlaus)
SÍMASTÚLKA: Var það eitthvað fleira?
VIĐSKIPTAVINUR: Nei, ekkert. Jú annars, hvað með þessa tvo lítra af kók sem fylgja frítt með pizzunum frá ykkur?
SÍMASTÚLKA: Því miður, Jón, en í smáa letrinu í auglýsingunni frá okkur stendur skýrum stöfum að við sendum ekki ókeypis gosdrykki til sykursjúkra.