Þegar ég sá auglýsinguna fyrir
Club Classics diskinn frá
Ministry Of Sound áttaði ég mig á því að ég á alveg ógrynni af tónlist sem var vinsæl þegar ég var á menntaskóla aldri. Eitt af þessum klassísku lögum heitir
Nakasaki (I Need A Lover) með Ken Doh og var vinsælt árið 1996. Sama ár var lagið
(I Love) America með Full Intention spilað í tætlur á diskótekunum... persónulega er ég ekkert hrifinn af Ameríku en lagið er flott fyrir það.
Undanfarnar vikur hef ég verið með
High Contrast remixið af Barcelona með D.Kay & Epsilon á heilanum, það er greinilegt að þar er einhver útlandaþrá í mér þessa dagana.
Ég bý mér reglulega til geisladiska til að hafa með mér í ræktina, stundum set ég inn lög sem enginn þekkir og oftar en ekki hitta þau í mark...
Guns Don't Kill People Rappers Do með Goldie Looking Chain er eitt þessara laga. Þetta lag er bara algjör steypa... rappararnir geta ekki einu sinni borið fram err-ið í Rappers.
Ég geri ráð fyrir að flestir þekki lagið Children með Robert Miles, að mínu mati er þetta eitt flottasta lag sem ég hef heyrt... á sínum tíma var þetta fyrsta
instrumental lagið til að toppa breska vinsældarlistann en núna er komin
vocal útgáfa af laginu. Í dag heitir lagið
Do You Know (I Go Crazy) og er með Angel City.... ég tek upphaflegu útgáfuna fram fyrir þessa nýju.
Undanfarna mánuði hefur komið út ótrúlega mikið af flottri house-tónlist, eitt gott dæmi er lagið
Get Up Stand Up með Stellar Project. Annað dæmi er
Call On Me með Eric Prydz en þessa stundina er þetta lang vinsælasta lagið í Bretlandi og víðar í Evrópu... og ekki spillir fyrir að myndbandið við lagið er algjör snilld og er bannað á MTV og fleiri tónlistarstöðvum.
Hérna getið þið búið til ykkar eigin útgáfur af myndbandinu og séð hvers vegna myndbandið var bannað.
Að lokum... Scooter er með tónleika í Reykjavík um helgina, ég hefði örugglega farið á þá ef ég hefði haft einhvern tíma aflögu. Eftir rúma viku kemur út nýtt lag með Scooter, það heitir
Shake That! og er í pop-house stílnum og virðist það vera einhver stefnubreyting hjá þýsku "tekknótröllunum". Þetta er auðvitað endurgerð á gamla
KC & Sunshine Band diskósmellnum Shake, Shake, Shake (Shake Your Booty)... ég heyri nú reyndar líka smá brot úr Pussylover í byrjun lagsins en það eru bara nokkrar sekúndur.
Skemmtið ykkur vel um helgina og hugsið hlýtt til mín því ég þarf að vinna alla helgina.