laugardagur, desember 31, 2005
Það styttist í að árið 2005 sé á enda liðið. Árið hefur verið viðburðaríkt hjá mér og það væri alltof langt mál að fara að telja upp einstaka atvik. Framundan er gamlárskvöld með brennu, flugeldum og skaupi að ógleymdu sjálfu áramótaballinu. Ég ætla að byrja kvöldið á því að hlusta á "ármixið" á
SLAM!... svona rétt til að koma mér í djammgírinn!
Sjáumst í kvöld á brennunni, í partýum eða á ballinnu...
Gleðilegt nýtt ár!
» 17:51 // Baldur Smári //
sunnudagur, desember 25, 2005
Eitt af því skemmtilegasta sem var undir jólatrénu mínu þetta árið var
iPod 60 spilari. Ég er loksins búinn að finna gott forrit til eða recoda allar mpeg, avi og wmv skrárnar mínar yfir í mp4 formið til að geta horft á þær í iPod-num. Þetta er algjör snilld.
» 15:07 // Baldur Smári //
laugardagur, desember 24, 2005
Það styttist í að jólahátíðin gangi í garð... þó maður sé ekki búinn að gera allt sem maður ætlaði sér þá getur maður alltaf verið viss um að jólin koma klukkan 6 á aðfangadag. Steikin er í ofninum og óvenju margir pakkar eru undir jólatrénu. Ég hlakka svolíitið að opna suma pakkana... eða reyndar alla ef ég á að segja alveg satt. Ég mun samt ekki fá jafn góða jólagjöf og Róbert Anni en hann fékk litla son sinn heim af fæðingardeildinni í dag... ég kíkti í heimsókn til hans áðan og ég verð að segja að þetta er hinn myndarlegasti drengur. En að lokum er það auðvitað jólakveðjan...
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! - Baldur Smári -

Hólskirkja í Bolungarvík
» 17:17 // Baldur Smári //
fimmtudagur, desember 22, 2005
Það virðist sem ónefndur aðili hafi "týnt" hálfum kassa af bjór á Kjallaranum á síðustu helgi... sá hinn sami getur nálgast bjórinn sinn hjá mér... ég geri ráð fyrir að bjórinn muni koma að góðum notum yfir hátíðarnar...
» 00:40 // Baldur Smári //
Ég er boðinn í
Skötuveisluna í Kjallaranum á morgun þar sem mikið beitningadjamm verður. Ef marka má skötuveislur síðustu ára þá má ekki búast við að ég mæti mikið í vinnuna eftir hádegið á morgun... ég þarf samt sem áður að mæta á bæjarstjórnarfund seinni partinn og þá tek ég skötuilminn bara með mér... öðrum fundarmönnum eflaust til mikillar gleði.
» 00:11 // Baldur Smári //
miðvikudagur, desember 21, 2005
Námsmenn eru oft blankir og leita allra ráða til að bæta efnahaginn, einn breskur stúdent fékk þá frábæru hugmynd að búa til
heimasíðu þar sem hann selur fyrirtækjum örsmáar auglýsingar... hann er á leiðinni að verða búinn að græða
milljón dollara á þessu uppátæki síni... það ætti að duga fyrir náminu og kannski rétt rúmlega það!
» 15:57 // Baldur Smári //
Það styttist í jólin og þá lækkar meðalaldurinn á svæðinu því þetta er tíminn þar sem skólakrakkarnir koma heim til föðurhúsanna til að halda jólin hátíðleg á Hótel Mömmu. Þó það sé gott að vera heima um jólin þá hefði ég nú ekki slegið hendinni á móti því að vera staddur úti á Florída núna að spila golf eins og sumir sem ég þekki ;-)
Það væri líklega við hæfi að koma með einhver jólalög hérna... en mér finnst þau ekkert skemmtileg... það er alveg eins hægt að skella inn eins og þremur góðum cover-lögum...
Tina Cousins - Wonderful LifeLMC - You Get What You GiveScooter - Everlasting Love
» 13:13 // Baldur Smári //
þriðjudagur, desember 20, 2005
Stundum veltir maður því fyrir sér hvort maður sé á rangri hillu í lífinu...
hérna getur maður séð hver sé hentugasta vinnan fyrir mann... niðurstaðan hjá mér var:
Baldur Smári, Your ideal job is a Rally Car Driver.
» 11:44 // Baldur Smári //
mánudagur, desember 19, 2005
Sú var tíðin að ég eyddi drúgum tíma í að leysa skákþrautir... hérna er ein góð sem ætti að stytta ykkur stundirnar fram að jólum.
» 14:53 // Baldur Smári //
Ef þú ætlar þér að komast í gott form eftir jól þá er þetta málið...
The Jordan Workout...
» 12:26 // Baldur Smári //
Það er nóg að gera í tónlistinni hjá Víkurum þessa dagana. Um helgina fékk ég sent nýja lagið með Einari Erni og Killer Bunny en það er hjómsveitin sem hann er með í Keflavík. Lagið heitir
"Leiðin heim" og er hægt að nálgast það fríkeypis á
www.jon.is. Lagið er frumsamið og er tekið upp af Kidda úr hljómsveitinni Hjálmum.
» 11:57 // Baldur Smári //
laugardagur, desember 17, 2005
Þetta kom mér virkilega á óvart!
» 21:04 // Baldur Smári //
Það komst enginn með tærnar þar sem við Sigurvin höfðum hælana í Kjallarakeppninni í kvöld. Við rústuðum keppninni og vorum með 22 stig af 30 mögulegum og fengum kassa af bjór í verðlaun. Næsta keppni verður í janúar og þá verður það ég sem spyr skemmtilegra og ef til vill smá nasty spurninga ;-)
» 04:52 // Baldur Smári //
fimmtudagur, desember 15, 2005
Fyrsta
Kjallarakeppnin mun fara fram á morgun, það hefur verið skorað á mig að taka þátt og ég býst við að taka þeirri áskorun. Í Kjallarakeppninni eru tveir saman í liði og þurfa liðin að svara 30 vel völdum spurningum frá Bjarna Pétri Jónssyni. Verðlaunin eru ekki af verri endanum en það mun vera heill kassi af bjór í fyrstu verðlaun. Mér finnst gaman að vinna en ég drekk ekki bjór, þannig að ef mitt lið vinnur þá fær makkerinn minn allan bjórinn.
Ég auglýsi hér með eftir góðum makker... áhugasamir mega gefa sig fram í kommentunum...
» 16:17 // Baldur Smári //
Það eru tveir geisladiskar sem einoka græjurnar mínar þessa dagana, fyrri diskurinn heitir einfaldlega
Westwood og er 10. diskurinn frá hip-hop plötusnúðnum
Tim Westwood. Þarna er um að ræða rjómann af besta hipp-hoppinu á árinu, t.d. Gold Digger, Pon de Replay, Gasolina, Dreams, Just A Lil Bit, Signs, Don't Cha, Hollaback Girl og Bananza ásamt nokkrum klassískum lögum frá Tupac og Dr. Dre.... allt er þetta svo mixað frábærlega saman í tvær syrpur.
Seinni diskurinn heitir
Tokyo Project: The Collection og er house-diskur sem er mixaður af Mark Doyle sem var aðalmaðurinn á bak við Hed Kandi seríuna... á disknum (þrefaldur) er að finna allt það besta sem árið 2005 bauð upp á í dansheiminum... t.d. lög með flytjendum á borð við Jamiroquai, Mylo, Basement Jaxx, Bon Garcon, X-Press 2, Inaya Day, Freemasons, Faith Evans, Soul Seekerz, Soul Central, Scissor Sisters, Bodyrockers, Royksopp og The Killers.
» 12:26 // Baldur Smári //
þriðjudagur, desember 13, 2005
Mugison og Hjálmar voru að taka upp lag saman sem heitir
"Ljósvíkingurinn" - Þetta er sjóðandi heitt lag sem var tekið upp í gærkvöldi og er gefið aðdáendum í tilefni jólanna... Ég bendi fólki líka á að mæta á
Jólagrautinn á
NASA á föstudagskvöldið en þar ætla Mugison, Hjálmar og Trabant að djamma saman. Forsala hefst á morgun í 12 tónum á Skólavörðustíg.
» 10:55 // Baldur Smári //
mánudagur, desember 12, 2005
Mér er það sannur heiður að fá að kynna nýja jólalagið frá hljómsveitinni
“Húsið á sléttunni”. Lagið heitir
Hasar á jólanótt og er ekki þetta hefðbundna rokk-popp jólalag… mér finnst þetta bara hið fínasta jólalag.
» 01:46 // Baldur Smári //
Ég missti mig í fríhöfninni á Stansted þar sem úrvalið af eðalvínum var mikið, eftir miklar pælingar fór ég heima með eina flösku af
Remy Martin X.O. Premier Cru sem kostaði mig aðeins 50 pund eða rúmlega 5 þúsund krónur. Sama flaska kostar 10 þúsund krónur í fríhöfninni í Keflavík og mig langar virkilega til að vita hvað svona flaska myndi kosta í
Á.T.V.R. Þessi koníaksflaska verður bara til spari og fá aðeins útvaldir að bragða á guðaveigunum.
» 01:28 // Baldur Smári //
mánudagur, desember 05, 2005
Ég fer út til London á morgun... tilgangurinn er að fara á 2 leiki í meistaradeildinni. Fyrri leikurinn er viðureign Chelsea og Liverpool og sá seinni er Arsenal vs. Ajax. Frítíminn milli leikja verður eflaust notaður í búðaráp og þess háttar skemmtun. Þetta verður því líklega seinasta bloggið mitt fram á næstu helgi... en þá kemur auðvitað ferðasagan...
» 02:00 // Baldur Smári //
sunnudagur, desember 04, 2005
Anna Rawson er uppáhalds kylfingurinn minn í dag… ekki spurning!
Hérna eru fleiri myndir af henni.
» 00:46 // Baldur Smári //
Nú er hægt að fylgjast með því hverjir eru á rúntinum á Ísafirði í gegnum nýju
vefmyndavélinni við Silfurtorg. Þessi myndavél er samt ekki jafn flott og
vefmyndavélin okkar í Víkinni… Þetta er samt mikil framför hjá nágrönnum okkar, það verður að viðurkennast.
» 00:40 // Baldur Smári //
laugardagur, desember 03, 2005
Ég skrapp í flotta veislu í gærkvöldi, Einar Kristinn sjávarútvegsráðherra var að halda upp á fimmtugsafmælið sitt í Félagsheimili Bolungarvíkur. Ætli það hafi ekki verið rúmlega 400 manns í þessu partýi og þar á meðal fullt af kunnuglegum andlitum, t.d. forsetinn, nokkrir ráðherrar og þingmenn auk þekktra aðila úr viðskiptalífinu. Það er ótrúlegt að maður þurfi ekkert að hafa fyrir því að standa við hliðina á valdamestu mönnum landsins og spjalla um daginn og veginn við þá, þetta er bara hægt á Íslandi. Ég skemmti mér ljómandi vel í afmælinu og skilaði mér ekki heim fyrr en undir morgun. Það verður erfitt að toppa þessa veislu hjá Einari Kristni… já og þetta var sko ekkert barnaafmæli… svo vitnað sé í sjálft afmælisbarnið.
» 23:52 // Baldur Smári //
föstudagur, desember 02, 2005
Ég mæli með að þið skoðið þessar frábæru myndir af
stjörnum og norðurljósum, mér finnst englamyndin frekar flott ;-)
» 00:42 // Baldur Smári //
fimmtudagur, desember 01, 2005
Ég hef alltaf verið lítið fyrir bjór... kannski
þetta sé ástæðan fyrir því...
» 10:38 // Baldur Smári //