Vegagerðin telur 3 leiðir vera mögulegar, þ.e. Hnífsdalsleið, Skarfaskersleið og Seljadalsleið. Bæjarráð Bolungarvíkur telur að tvær þessara leiða, Hnífsdalsleið og Skarfaskersleið, auk Tungudalsleiðar uppfylli þær öryggiskröfur sem lagt var upp með. Þá telur bæjarráðið að Skarfaskersleiðin og Tungudalsleiðin séu álitlegustu kostirnir sem kannaðir voru í skýrslunni.
Það er því ljóst að það verða gerð löng göng milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar og er það auðvitað mikið fagnaðarefni fyrir okkur Bolvíkinga og nágranna okkar á Ísafirði og nágrenni.