fimmtudagur, desember 13, 2007
Í hádeginu í dag var mér falið það skemmtilega verkefni að lesa upp úr góðri bók fyrir matargesti í Einarshúsi hér í Bolungarvík. Ég valdi að lesa upp úr bók Einars Más Guðmundssonar, Rimlar hugans, en rithöfundurinn sat einmitt við hliðina á mér í flugvélinni á leiðinni heim frá París um daginn.
Mér finnst við hæfi að birta smá kafla úr bókinni þar sem Einar Már segir frá vini sínum Baldri sem hafði yfirgefið konu sína og börn fyrir hana Jane sem var amerískur endurskoðandi af norskum ættum.
"Jane trúði því að hún hefði verið send til Dalvíkur af yfirnáttúrulegum öflum og Baldur fékk hugljómun, yfirgaf konu og börn, og fylgdi henni eins og mormóni yfir hafið, alla leið til Ameríku. Fyrirtækið hans, Balli, sem framleiddi nuddpotta og beið eftir að vinna markaði í fjarlægum löndum, fór á hausinn, en í það hafði reyndar stefnt um hríð. En það var ekki Baldri að kenna, heldur Byggðastofnun og gott ef ekki Framsóknarflokknum sem stjórnaði Byggðastofnun einsog flestu öðru. Þannnig er það bara þegar við klúðrum hlutunum. Ekkert er okkur sjálfum að kenna."Reyndar mættu ansi margir síðustu tvær setningarnar til sín:
"Þannnig er það bara þegar við klúðrum hlutunum. Ekkert er okkur sjálfum að kenna." Mér finnst alltof lítið um að fólk líti í eigin barm og viðurkenni mistök sín, þess í stað er fólk í stöðugru afneitun og reynir að skella skuldinni á aðra.
» 13:53 // Baldur Smári //
mánudagur, desember 10, 2007
Helgarskammturinn er aftur kominn á dagskrá. Að þessu sinni eru fimm frábær lög í boði.
1.
Freemasons - Uninvited: Hinir bresku frímúrarar taka hérna gamalt lag frá Alanis Morrisette upp á sína arma... hreinasta snilld.
2.
Kim Sozzi - Break Up: Þar er ljúfur Cascada ilmur af þessu lagi... DJ Manian og félagar klikka ekki.
3.
Milk Inc - Sunrise: Nú liggur leiðin til Hollands þar sem Milk Inc nýtur mikilla vinsælla, Jekyll & Hyde eiga þessa mögnuðu útgáfu af Sunrise.
4.
Rihanna - Don't Stop The Music: Hrikalega flott rödd í bland við krafmikið poppað diskó, einhverra hluta vegna kemur gamalt Michael Jackson lag upp í hugann á mér.
5.
Scooter - The Question Is What Is The Question: Þýska vespugengið mætir hér með enn einn smellinn, eðal rafvirkjapopp fyrir alla alvöru hnakka.
» 14:42 // Baldur Smári //
Eftir margra mánaða þagnarbindindi er ég aftur farinn að skrifa niður hugleiðingar mínar hér á Blogspot. Vera mín á Moggablogginu hefur gert skrifin steingeld og stundum finnst mér eins og ég hafi týnt ástríðunni fyrir skapandi skrifum.
» 11:41 // Baldur Smári //
laugardagur, apríl 21, 2007
Það er mikið að gera hjá mér í vinnu og einkalífi þessa dagana og því er lítið bloggað hérna megin. Þar til að vertíðinni hjá mér lýkur þetta vorið má finna fréttir af mér á
vikari.blog.isAð öðru leyti gengur lífið sinn vanagang hjá mér og ég get upplýst að ég er á leiðinni til Spánar í golf næstkomandi föstudag. Ég verð í 10 daga í sólinni og kem sólbrúnn og sætur tilbaka rétt fyrir kosningar og Eurovision.
» 22:18 // Baldur Smári //
mánudagur, apríl 02, 2007
Ég get ekki neitað því að ég brosti út í annað þegar ég rakst á
þessa mynd á netinu í kvöld. Þetta hafa greinilega verið ánægjulegir endurfundir hjá '78 árgangnum í Víkinni.
» 21:28 // Baldur Smári //
fimmtudagur, mars 29, 2007
Það verður boðið upp á "froðudiskótek" á skemmtistaðnum
Vaxon í Bolungarvík um páskana. Ég fór á slíkt dizkó á Benidorm fyrir næstum 5 árum síðan, það var ágætis tilbreyting en ekkert sem maður sækist sérstaklega eftir.
» 00:59 // Baldur Smári //
Lengi vel var ég mjög hrifinn af svokölluðum cola-drykkjum. Sennilega var það koffeinið sem fékk mig til að halda að Kók væri bragðgott. Núna heyrir það til tíðinda að ég drekki Kók og hefur Kristallinn tekið við sem eftirlætis gosdrykkurinn. Fyrir nokkrum árum síðan hefði ég talið fásinnu að mér ætti eftir að þykja drykkir á borð við Kristal góðir. En tímarnir breytast og mennirnir með.
» 00:22 // Baldur Smári //
miðvikudagur, mars 28, 2007
Mér að það sönn ánægja að bjóða upp á
Eliza Wrona sem er nýjasta afurð hljómsveitarinnar
Grjóthrun í Hólshreppi en sveitin er einmitt aðalnúmerið á rokkhátíðinni
Aldrei fór ég suður í ár.
» 19:51 // Baldur Smári //
þriðjudagur, mars 27, 2007
Það er ekki nema mánuður í að ég haldi "heim" til Islantilla í mína árlegu golfferð. Það er mikið að gera hjá mér þessa dagana og ég hef ekki tíma til að láta mér hlakka til ferðarinnar.
» 21:34 // Baldur Smári //
föstudagur, mars 23, 2007
Atvinnumálin eru mér hugleikin þessa dagana. Af því tilefni datt mér í hug að leggja fyrir ykkur einfalda spurningu sem ég hvet ykkur til að svara með kommenti.
Við hvað vildir þú helst af öllu starfa - hvert er þitt draumastarf?
» 14:57 // Baldur Smári //
Ég skrifaði
færslu um enska boltann og Sýn á Moggabloggið í dag. Það er víst nokkuð ljóst að enski boltinn verður ekki á Sýn næsta vestur heldur verður stofnuð ný sjónvarpsstöð um útsendingar frá enska boltanum. Ný stöð, ný áskrift. Ef þetta reynist rétt gæti svo farið að við Bolvíkingar sjáum ekki enska boltann næsta vetur... nema að Digital Ísland fari að bjóða upp á fleiri stöðvar á svæðinu en það mun víst þýða að setja þarf upp annan sendi til að geta sent út allar rásirnar. Lesa má meira um málið með því að smella
hér.
» 01:20 // Baldur Smári //
þriðjudagur, mars 20, 2007
Ég er farinn að halda aðeins framhjá Blogspot.com en viðhaldið kallast
vikari.blog.is og er hluti af Moggablogginu. Ég er þó ekkert hættur hérna megin en áherslunar verða eitthvað breyttar. Það verður meira af leiðinlegu lesefni á
vikari.blog.is heldur en hér - ég ætla sem sagt að reyna að vera skemmtilegur hérna megin. Hér verða færslurnar í styttri kantinum en hinum megin má alveg búast við löngum ritgerðum um málefni líðandi stundar. Sumt fær þó að birtast báðum megin.
Að lokum vil ég benda á að í gær setti ég fjórar
bolvískar skjámyndir inn á Moggabloggið sem ykkur er frjálst að nota.
» 20:25 // Baldur Smári //
sunnudagur, mars 18, 2007
Eftir að hafa þurft að dveljast heima í nokkra daga vegna veikinda var mér farið að leiðast að geta ekki gert eitthvað gagn. Ég tók mig því til og þreif húsið hátt og lágt um helgina og kórónaði dugnaðinn með því að baka köku í kvöld. Samt sem áður eru þetta einungis venjuleg störf húsmæðra, þeim finnst ekkert tiltökumál að sinna slíkum verkum dags daglega. Ég ber mikla virðingu fyrir húsmæðrum, þær eiga lof skilið fyrir ómælt vinnuframlag á heimilum þessa lands í gegnum tíðina.
» 22:23 // Baldur Smári //
Á föstudaginn breytti
bb.is um ham og ég verð að segja að ég er ánægður breytinguna, hún er til batnaðar. Eitt af því sem er nýtt á vefnum er yfirlit
sérvalinna bloggsíða, svo er að handahófi valið eitt blogg til að prýða forsíðu bb.is og má segja að þar með bætist frjálsleg óábyrg skrif við hinar klassísku greinar sem birtast reglulega á bb.is. Einnig er nú hægt að setja inn blogg/athugasemdir við einstakar fréttir og greinar, það er eitthvað sem getur verið fróðlegt að fylgjast með hvernig verður notað í framtíðinni.
» 17:17 // Baldur Smári //
Á dögunum fór ég ásamt Grími Atlasyni bæjarstjóra Bolungarvíkur og Árna Kristjánssyni dósent við HÍ á leik Liverpool og Barcelona í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Ferðin var með eindæmum skemmtileg og hverrar krónu virði. Ég setti fáein orð á blað vegna ferðarinnar og má sjá afraksturinn í þessari
myndasyrpu.
» 17:05 // Baldur Smári //
Ég skrifaði langa færslu um þjónustu skattsins en það virðist sem Blogspot vilji að ég sé stuttorður. Þannig fékk ég aðeins villuboð þegar ég vildi birta færsluna. Þess í stað setti ég færsluna inn á
vikari.blog.is þar sem í lagi er að vera langorður ;-)
» 15:26 // Baldur Smári //